hingað inn laumaðist sendill rétt fyrir hádegið með veglegan blómvönd..
sendillinn spurði um Dagnýju – haldiði ekki að sæti sæti strákurinn hafi verið að senda mér blóm 🙂
reyndar átti vöndurinn ekki að koma fyrr en eftir viku (smá klúður hjá blómabúðinni *híhí*)
en vá hvað það er gaman að fá blóm í vinnuna 🙂
ég er búin að sitja hérna í vinnunni síðan þá (fyrir utan matarhléið mitt sem ég nýtti auðvitað í að fara heim með fallegu blómin mín og setja í blómavasa) með þetta líka svaðalega sólheimaglott
híh krúttlegt 🙂
Þessir verkfræðingar geta nú líka verið rómó 😉
Ég hef 2 sinnum fengið blóm í vinnuna. Einu sinni frá kærastanum mínum og einu sinni frá ánægðum kúnna 🙂
Njóttu blómanna þinna!
heh, jájá hann á sín móment 🙂 það er alveg á tæru 🙂
verst að þetta átti að koma á afmælisdaginn minn .. það hefði verið enn skemmtilegra
en takk fyrir þetta stelpur:mrgreen:
Ó en rómó þetta var nú sætt af honum en það verður vonandi einhvað annað skemmtilegt á afmælinu.
iss miklu skemmtilegra að fá þetta ekki á afmælinu .. þá er það enn meira surprise 🙂
*Heh* jájá en kortið átti bara ekki við 😉
Ahhh en krúttlegt ;P
Ohhh… Núna langar mig líka í svona kærasta 😉
heh, mér skilst að þú hafnir svo mörgum *haha* eins og tildæmis þessum sem var ó svo rómó að skilja eftir afmælispakka handa þér á bílnum þínum *hóst*creepyguy*hóst*