ég er með bólu á sálinni sem er við það að springa…
frekar sárt..
ef ég læt hana springa þá er ég bara að fara að særa ó svo marga í kringum mig og þar sem ég er svo mikill asni þá get ég ekki gert það, fæ mig enganvegin til þess. Mér er það ómögulegt að segja fólki suma hluti sem ég veit að eru of sárir fyrir viðkomandi.. þessvegna er oft betra fyrir mig að þegja bara og týnast ofaní smá holu.. reyna að láta hana bara hjaðna rólega…
Þetta er svo óþægilegt þar sem ég met svo mikils hreinskilni fólks og kýs eftir fremsta megni að vera hreinskilin sjálf.. en það er einmitt ekki hægt í öllum tilfellum þar sem sumt er einfaldlega of sárt fyrir viðkomandi.
á meðan fær múttakrútta þennan skammt í sín eyru.. alltaf gott að geta rætt málin við hana..
mér þykir það voðalega leiðinlegt ef ég hef verið leiðinleg við einhvern síðustu daga.. en það er einhvernvegin eins og svo margir sem maður hefði haldið að þekktu mann amk að einhverju leiti hafi náð að ýta á bókstaflega alla þá hnappa til þess að gera mig enn daprari en ég er yfir þessu öllu saman.