samkvæmt póstinum þá bý ég víst ekki á mínu heimilisfangi *verulegahissa*
Vinnan var að fá launaseðilinn minn endursendann… dáldið skrítið að taka á móti þessu sjálf *hah*
Eitt finnst mér reyndar mjög skrítið.. það var búið að opna umslagið og það sett aftur í póst hálf opið 🙄 ég hef aldrei áður fengið endursendan póst hingað sem hefur verið opnaður :hmm:
Ég hringdi auðvitað í Íslandspóst þar sem þetta er ekki eðlilegt.. það eina sem kemur til greina er að nýji pósturinn hafi bara gert mistök.. *piff* maður opnar samt ekki bréfin (sérstaklega ekki þegar þau eru í fyrirtækjamerktum umslögum)
Kvikindið hefur líklega borið bréfið út á rangan stað og íbúi þar opnað það og endursent það er upp komst um mistökin. I know everything enda nánast forstjóri fyrirtækisins. 😉
jájá ég veit það… bara fúlt 😛
og fyndið að fá bréf til sjálfssíns endursent í vinnuna sína 🙂