… vildi ég að ég gæti hraðspólað tímanum.. væri alveg til í að vera að mæta síðasta daginn minn í vinnu á morgun..
EN ef það myndi gerast þá væri ég búin að missa af:
1. útilegunni um næstu helgi (sem mér sýnist á ýmsu að verði í Þórsmörk),
2. af afmælinu mínu þann 10 ág,
3. af Menningarnóttinni
4. og já tíma til þess að kveðja alla áður en við förum út.
En tíminn á víst eftir að líða alveg nógu hratt.. það er bara eitt sem ég myndi vilja í augnablikinu og það myndi ekki skemma neitt af því sem ég var að telja upp og það er að hraðspóla fram til fimmtudagsins næsta því að þá fæ ég Leifinn minn aftur til byggða.