ef einhverjum dettur það snjallræði í hug að hringja í mig næstu 2 daga þá gæti alveg farið svo að þið fáið hin stórskemmtilegu skilaboð sem leynast í talhólfinu mínu…
Ég er nefnilega að fara með símann minn í “aflæsingu” og skv stelpunni sem ég talaði við í morgun þá tekur það víst heila 2 daga að gerast (yeah right)… aníhú það næst alltaf í mig í vinnnusímann á milli 8 og 16 á daginn *hehe* svo má alltaf reyna heimasímanúmerið 🙂
veit nefnilega ekki hvort ég eigi eftir að fá mér lánssíma eða ekki 😛
kemur í ljós 🙂
hefðir nú átt að gera það hjá ogvoda, hefði reddað þessu fyrir þig á nóinu.
heh, máske… ég bara fékk ekki þau svör þegar ég hafði samband 😉
en það er auðvitað ekki sama hvern maður talar við…
annars er mér nett sama.. fínt að vera frjáls 😉
öss við reddum þessu, tala við þig á msn á morgun. símalaus (ég svitna við tilhugsunina)
neinei, ég er sátt við mitt sko 🙂 er búin að grafa upp gamla hlunkinn hans pabba… C hvort ég nenni að nota hann eða ekki..
fæ simann hvorteð er á föstudag.. einn dagur til eða frá er í fínu mínvegna 🙂