Við Leifur rákumst á voðafallega tisulóru þegar við vorum að labba heim úr bænum á föstudagsnóttina… Hún var alveg ólm í að láta knúsa sig og kjassa.. *atshjúh*
lá við að ég vildi bara taka hana með heim og eiga hana, en ólin var á sínum stað þannig að hún átti vonandi gott heimili. Það var bara svo sætt hvernig hún leitaði í að láta klappa sér, stundum virtist maður ekki vera nógu fljótur til þá kom hausinn bara á fullu spani á móti höndinni… bara sætt :cat:
Leifur tók þessa mynd af mér og tisanum, frekar skrítin mynd þar sem við erum ekki í fókus en bakgrunnurinn er í fókus 🙂
smellið á myndina til að fá stærri útgáfu 🙂