jæja þá er það komið á hreint 🙂
Við ákváðum að taka íbúðina í Holte, búin að borga staðfestingagjaldið og alles 😉
Tengdó var orðin svo forvitin í gær að hún tók sig til og fór að skoða þennan bæ á netinu eftir fremsta megni og fann ýmsar síður tengdar Holte, frekar sniðugt margt sem hún fann.. m.a. loftmynd af götunni okkar! meiraðsegja hægt að sjá hvaða hús er okkar 🙂 ferlega sniðugt 🙂
Svo fann hún líka síðu fyrir “kommúnuna” okkar. Ég hef ekki haft mikinn tíma til þess að fikta í þessu öllu saman… fínt að hafa hana í þessu *hehe*
er bara fegnust því að við tókum þessa ákvörðun 🙂
EF okkur líkar ekki dvölin þarna þá er alltaf hægt að flytja, ekki satt?
Til hamingju frænka !
ykkur á eftir að líka vel þarna svo er líka stutt í allar áttir þú veður að kíkja til Hilleröd sem er aðeins lengra frá kaupmannahöfn og fara þar og skoða Frederiksborg Slot þar var Jón Bek skírður !
kv, HK
úúú
ég held að við eigum eftir að nýta helgarnar þarna úti annsi vel!!!
Til hamingju með íbúðina.
frábært 🙂 til hamingju með staðfestinguna.. þá er einu málinu færra að hugsa um 🙂 vííí