Ég fór með SVIK í heimsókn í Grafarvoginn áðan.. ágætis kvöldstund með fólkinu hans Leifs. Var að fylla upp í eyðurnar hjá SVIK í sambandi við húsnæðismálin hjá okkur LS, finnst ekki alveg rétt að þau lesi um það allt saman hérna *heh* og ég búin að vera upptekin við að stússast á kvöldin með ma&pa í kringum JR frænda en hann fór í dag áleiðis heim, þannig að ég gat voðalítið verið að hringja í þau.. vildi frekar segja þeim stöðuna sjálf heldur en með e-maili… 🙂
Aníhú, um það leiti sem við vorum að fara úr Grafarvoginum tókum við eftir því að sólin var við það að setjast þannig að við ákváðum að kíkja fyrst upp á 7undu hæð til þess að sjá sólsetrið.. ekkert smá flott 🙂
stóðst ekki mátið og prufaði hæfni mína í panoramamyndatöku :engill:
kom barasta ágætlega út.. en þetta var rosalega falleg sjón:sun:
mjög flottar myndir 🙂
enda flott myndefni 😉