Mér finnst rigningin yndisleg..
allavegana svona vor rigning eins og er búin að vera í gær og í dag… maður hreinlega sér grasið grænka og tréin taka við sér.. yndislegt alveg hreint:!:
finnst svo gaman að því að fylgjast með garðinum við húsið.. þó svo að mér finnist ekki eins gaman að vinna í honum.. ég held ég viti reyndar alveg afhverju það stafar… mér leiðist ofnæmið mitt.. eða ætti ég að segja ofnæmin mín *dæs* það er bara svona.
Mér finnst lyktin af birki æðisleg rétt eftir rigningu
Mér finnst lyktin af nýslegnu grasi æðisleg
Mér finnst æðislegt að fylgjast með garðinum á vorin, hvernig hann vex og dafnar.
Mér finnst vorið yndislegur árstími :sun: