Ég og Axel ákváðum að fara á smá myndarúnt og fórum upp að Hafravatni nema að það var slatti snjór á svæðinu og eg ákvað að leyfa Axel að keyra litla græn… pínu reyndari ökumaður en ég sko… allavegana við keyrum þarna einhvern veg sem liggur að hafravatni en svo er líka hægt að fara eitthvað áfram og hmm prufum að fara þann veg!!! og NEH litli grænn er sko bara með framhjóladrif… og er LÍTILL bíll og hvað tókst okkur að gera?!?! jámm festast!!! en sem betur fer þá var nóg af bílum þarna og mjög indæll jeppagaukur sem dró okkur úr prísundinni… við ákváðum að geyma bara þessa myndaferð og keyrðum í bæjinn aftur 😉 held ég fái Lancerinn hjá M&P lánaðan næst þar sem hann er 4X4 eheheh 🙂 en þetta var bara fjör, smá svona ævintýri 🙂