ég er búin að vera að skrolla í gegnum ást er myndasögurnar mínar…
fyndið hvað sumar þeirra eiga vel við núna…
það er reyndar fyndið hvað þær virðast stundumhitta VEL á í mogganum líka… t.d. veit ég að eitt sinn birtist “Ást er.. að vera með barni” daginn eftir að par komst að því að þau ættu von á erfingja enda er sú mynd til hjá þeim rúmum 26 árum síðar
æj.. ég er lítil í mér.. LS er í engu símasambandi (svo virðist vera sem OgVondafón sé ekki með samband þarna upp á fjöllum), veit ekki hvort það sé sími á vinnustöðinni þar sem hann er eða hvort hann hreinlega kunni ekki við að nota hann í persónuleg símtöl fyrstu dagana… þannig að eini samskiptamöguleikinn okkar hingað til er í gegnum e-mail ekki alveg nóg…
Þetta reddast samt allt saman… hey ég stakk hann víst af í fyrra *Heh*