jæja, ég lék sennilegast ekki sniðugasta leikinn í morgun…
er sumsé mætt í vinnuna..
svitna við minnsta handtak og það er bara ó svo margt sem ég þarf að gera í dag
mín bíða hérna ca 150 undirskriftir til þess að slá inn í tölvukerfi.. (nei það getur enginn gert þetta sjálfur hérna *kaldhæðnisglott*), bunkar með upplýsingum um að þessi eða hinn hafi verið að greiða inn á bankareikning sjúkraþjálfara, kvittanabeiðnir og fleira skemmtilegt. Og miðað við hvernig allt er í rugli hérna þá er ofsalega gaman að vita það að maður er alveg ómissandi
Heyrði í LS í gærkveldi, ég fæ hann í bæjinn á sunnudagskvöldið *jeij* note to everyone.. síminn minn verður sennilegast out of servis á meðan hann er í bænum *haha* just kídding verst að fá engan frídag á meðan hann er í bænum. Þurfum að ganga frá svo mörgu í sambandi við DK og það sem fyrst.