mikið svakalega eiga sumar stjörnuspár vel við mig í dag…
mbl.is
LJÓN 23. júlí – 22. ágúst
Ljónið þráir að ferðast til framandi landa og vill hverfa frá hinni hversdagslegu rútínu. Ef það kemst ekki að heiman má alltaf fara eitthvað í huganum og gleyma sér í bíó eða með bók.
Ivillage.com
Leo – You’re dangerously close to running out of steam. Time to take a break and recharge
Spámaður.is
Ljónið (23.júlí – 22.ágúst)
Aðeins hjarta þitt veit rétta svarið en hjarta ljónsins hefur ágætt innsæi og skynjar það sem rétt er. Hér birtist fortíð þín þar sem þú virðist vera fastur/föst í liðnum atburðum. Þessi umtalað líðan er val af þinni hálfu (stundum þarf maður að taka á honum stóra sínum til að halda ótrauður áfram og breyta reynslu sinni í ávinning fyrir samferðamenn og ekki síður sjálfið).
~~~~~~~~~~~~~~~~
sko þetta sem er á mbl.is og Ivillage á svo innilega vel við mig þessa dagana.. ég er síþreytt og verulega andlaus.. langar t.d. núna mest að vera heima og lúllamér… (dagný kaupa meira vítamín).
Hinsvegar þarf ég að pæla eilítið meira í þessu hjá Spámanninum