í morgun mætti hérna kona fyrir kl 9 í fyrsta tíma, en hún átti ekki tíma fyrr en kl 1. ég sagði henni það að hún væri ekki á réttum tíma og jaryjaryjary… heyrðu takk fyrir ég átti bara að hringja í þjálfarann sem hún var skráð hjá og láta hana mæta fyrr!!!
frekja í fólki
stuttu síðar mætir hérna kona sem er búin að vera hérna í nokkur skipti og tekur upp á því að fara að færa til blómapott og húsgögn á biðstofunni?!?! hvað er að!?! halda mætti að hún hafi verið að reyna að Feng Sui-a staðinn en ég held reyndar að því fylgi ekki að setja mold út um allt gólf með tilfærslum á blómapottum *urg*
ætli þetta sé kannski bara dæmigerður mánudagsmorgun ?