já það er alveg hárrétt enda er ég ekkert á leiðinni í þann pakka á næstunni *heh*
Ég er að verða alveg tjúll mig klæjar svooo…
það sem er verst eru blettirnir á bringunni, þar eru svona stórir grisjuplástrar yfir og húðin mín er EKKI að samþykkja þá.. Mamma lenti reyndar í því fyrir ca 2 árum síðan að fá ofnæmisviðbrögð undan svona plástrum.. spurning hvort það sama sé að gerast hjá mér þar sem mig klæjar meira undir plástrunum en ekki í sárunum. hmmm reyndar var mér alltaf sagt hérna í den að ef mig klæjaði í sár þá þýddi það bara að þau væru að gróa.. hvað sem er satt í því… máske var það bara til þess að fá mig til þess að hætta að klóra mér og hætta að kvarta undan kláða *Heh*