eða þannig!
Ég fékk svo aulalega spurningu áðan… ok ég veit alveg að ég er með plástra á andlitinu, I get that…
en að vera svo fyndinn að spyrja mig hvort ég hafi skorið mig við rakstur er nú alveg tær snilld!
er búin að vera að dunda mér ásamt Iðunni að búa til afsakanir fyrir þessum sárum svona til þess að hafa eitthvað annað svar til tilbreytingar en “nei ég var að láta fjarlægja fæðingabletti”
við erum komnar með allavegana 3-4 góð svör.. eftir því hversu mikinn húmor fólk hefur og skilur mína kaldhæðni:
“nei, ef það væri nú svo gott.. það var reyndar ráðist á mig…. “
“ég vil samt ekki kæra.. ég er of skotin í honum”
“ég var í kringlunni og það kom einhver að betla pening og þegar ég vildi ekki gefa pening þá var bara ráðist á mig”
“nei besta vinkona mín varð afbrýðissöm þegar ég sagðist vera að fara að flytja úr landi”