ég var að skoða fréttablaðið um daginn og sá heilsíðu auglýsingu og mér BRÁ!!! ég sá nefninlega bara helminginn fyrst…
ÍSBÚÐIN Í ÁLFHEIMUM ER HÆTT að selja Kjörís
mér brá því að ég tók þessu þannig að ísbúðin í Álfheimum væri að hætta… en það má ekki!!!! neineinei…
Ég fór þarna svo í góðaveðrinu í gærkveldi og ákvað að sjá hvað þeir væru að bjóða upp á núna… auðvitað EMESSSSSSSSSSS ís… en ekki þennann venjulega heldur Jurtaís… hann er sko alveg ágætur… bleiki ísinn er reyndar soldið mikið bleikur að mínu mati… bleikari en síðan mín….