Iðunn vinkona dró mig út á laugardaginn… fá mig til þess að hugsa um eitthvað allt annað en Afa…
og já það tókst!!!
Við fórum fyrst og fengum okkur að borða á Red Chili, kíktum svo í Ikea og rúmmfó.. kíktum að lokum inn í Smáralind.
Við enduðum báðar á að kaupa okkur snemmbúnar sumargjafir *jeij* Iðunn fékk sér nýtt áklæði á sófann sinn já og nýjar gardínur þannig að hún er komin með rautt þema í stofuna hjá sér. Ég fann mér LOKSINS jakka.. svona léttan sumarjakka *jeij* á samt pottþétt eftir að kaupa mér annan þegar ég finn þennan drauma flauelisjakka sem ég er búin að búa til í kollinum á mér (verst að ég kann ekkert að sauma). Ég reyndar fann mér líka skó! létta sæta sumarskó… bæði Jakkinn og skórnir eru hvítir.. skórnir eru reyndar með ísaumuðu rauðumunstri, svaka sætt
Takk Iðunn mín…
náðir að dreifa huganum þennan dag.. og ég virkilega þurfti þess