jæja þá eru foreldrarnir komnir heilir á húfi á Framnesveginn…
Sótti þau út á völl og var komin þangað um 6:30 í morgun, þau voru hinsvegar ekki komin út fyrr en um klukkutíma seinna!!!! ég var farin að hallast að því að þau hefðu verið stoppuð í Tollinum eða e-ð því að ég var búin að sjá þau í gegnum tollhurðina… eða mömmu.. og þau eru nú ekki þekkt fyrir það að versla mikið í fríhöfninni.
Þegar ég var búin að knúsa þau aðeins heima og spjalla smá fór ég út á heilsugæslustöð… jább var að láta fjarlægja svörtu þræðina úr andlitinu á mér *jeij*
núna er ég ss bara með rauðar línur á nokkrum stöðum *heh* eins og sjá má hér