Við Iðunn ákváðum áðan að frumkvæði hennar að fara frekar í Body Pump tíma í stað BC…. aðallega vegna þess að okkur finnst það hreinlega ekki rétt að leiðbeinandi í tíma kunni ekki rútínuna!!! *urr*
Vá hvað þessi tími tekur á…. svitnar kannski ekki mikið en *jikes* hvað ég er ógeðslega aum í lærunum!!! það var ó svo vont að labba upp tröppurnar hérna heima.. og svo er LS að reyna að fá mig til þess að labba upp á efstu hæð í Álfheimunum… *æmigauma*
Já, Iðunn, me no like you at this moment!!!!!
baaaaaaaaara að standa við gefið loforð sko
Annars þá var tíminn alveg hreint ágætur… bara uh vont eftir á.. en sýnir það manni ekki bara að maður hafi tekið vel á? jú ég held það barasta… stoltari af mér á morgun.. þótt það verði erfitt að labba upp tröppurnar í vinnunni á morgun og EF ég fer í Álfheimana þá held ég að ég verði ca hálftíma að labba bæði upp og niður þessar blessuðu tröppur *dæs*