jámm vinnan fór í annsi skemmtilega óvissuferð í gær…
Allir söfnuðust saman inni á kaffistofu kl 4 og Monette sagði okkur frá fyrsta hlutanum… henni fannst nefnilega alveg tilvalið að það yrði svona klukkutíma tiltektarmaraþon í vinnunni þar sem við erum svo oft búin að tala um það á fundum að hafa svona tiltektardag. Júbb allir tóku svakalega vel í þetta og fólk byrjaði að fara út í sal og taka til höndum, mismikið þó… GG byrjaði að rífa ALLT út úr herb. 1 (a.k.a. barnaherbergið, fullt af allskonar leikföngum). Monette gat þá ekki haldið pókerfeisinu mikið lengur og sprakk úr hlátri og tilkynnti öllum að þetta hafi eiginlega bara verið grín og að við þyrftum eignlega að vera lögð af stað annað eftir 10 mín!!! Allir settir í að hjálpa Gauta að setja dótið aftur inn í herbergi… reyndar tókst okkur Unu að fylla ruslapoka af blöðum sem mátti alveg grisja úr… tókum reyndar líka skó sem voru búnir að vera í kassa í alltof langan tíma og henntum og eitthvað svoleiðis drasl *heh*
Þegar búið var að setja allt dótið + nuddbekkinn!!! inn í herbergið aftur var flokkað niður í bíla og við héldum af stað út í óvissuna. Við enduðum í húsnæði Fimleikafélagsins Björk inni í Hafnarfirði..
Þar skiptum við yfir í íþróttagallana og hittum hana Sjöfn, hún tók það hlutverk að sér að kenna okkur á KLIFURVEGGINN.
Alveg er ég að skilja Robba núna *heh* hann er forfallinn klifurfíkill og já ég er alveg að skilja það *Heh* En mikið svakalega eru þessir klifurskór hræðilega óþægilegir!!! Þetta var ekkert smá gaman og við vorum að klifra í veggjunum í rúman klukkutíma. Ég treysti mér reyndar bara í hluta af veggjunum þökk sé BP tímanum um daginn *fúlt* hefði svo verið til í að leika mér þarna strengjalaus og liðugri!!
Þegar allir voru búnir að fá nóg af príli fengum við að leika okkur á trampolíninu… *jeij* gaman þar til mér tókst að detta og er öll hrufluð á táslunum *heh* gaman samt
Strákarnir fengu líka að gera heiðarlega tilraun til þess að mynda “Krossinn” í hringjunum… já vægt tilorða tekið tókst engum þeirra það *Hehe*
Til þess að ná úr okkur síðasta því allra síðasta púðri sem til var var okkur hleypt í “grifjuna”…
“Grifjan” er já stór grifja full af svömpum *heh* Fyndið að sjá fullorðið fólk sleppa sér algerlega í keppnisandanum… það brutust meiraðsegja út smá slagsmál milli Gauta & Halldórs *heh* keppnisandinn er fyndinn
þegar við vorum búin að pústa aðeins ákváðum við að fara í pottinn… óhiðljúfalíf.. heitir pottar eru málið!! ekkert smá þægilegt að fara í heitan pott eftir svona hasar.
Eftir sturtu og smá shæning fórum við á Kaffi Nauthól og fengum okkur kvöldmat… nammigott. Monette hafði keypt smá gjafir handa öllum og hélt smá ræðu í gjafaútdeilingunum… ekkert smá fyndið. Þar sem ég er “andlit” SR þá fékk ég auðvitað gjöf í samræmi við það svona þar sem ég þarf auðvitað að tolla í tískunni!!
Yndislegt fólk, yndislegur endir á vinnuvikunni!!!
Svona ferðir eru bara snilld
Spurning um að undirbúa svona fyrir vinahópinn e-n tíma í sumar…
hægt að segja fólki að mæta með tjald, svefnpoka og góðaskapið?!?
Myndir úr óvissuferðinni má finna hér