ákvað að skella þessu inn svona í tilefni þess að ég hætti að drekka kók núna fyrir rúmu hálfu ári síðan…
verst að ég muni ekki akkúrat dagsetninguna en ég veit að það var í kringum afmælið hans Leifs þannig að ég held sennilegast bara upp á ársfrí frá kóki á afmælisdaginn hans. Held að það væri sniðugast.
Annars þá finnst mér eitt orðið svolítið fyndið… kók heillar mig bara alls ekkert lengur… var að hella kóki í glas fyrir einhvern um daginn og fann kanellyktina alveg gjósa upp og mér fannst þessi kanelsykurleðjulykt bara mjög ógirnileg. þannig að nei takk við kóki.
aníhú hér koma staðreyndirnar…
– 75% Bandaríkjamanna eru með krónískan ofþurrk. (Á sennilega við helminginn af íbúum jarðar)
– Hjá 37% Bandaríkjamanna er þorstaskynjunin orðin svo slök að hún er oft túlkuð sem hungur
– Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%.
– Eitt glas af vatni nægði til að slá alveg á hungurverki seint að kvöldi hjá næstum 100% þátttakenda í könnum hjá Háskóla í Washington.
– Ónóg neysla af vatni, er í FYRSTA SÆTI yfir það sem veldur þreytu yfir daginn.
– Niðurstöður úr einni könnun gefa til kynna að drekki fólk 8-10 glös af vatni yfir daginn gæti það létt á bakverkjum og liðaverkjum hjá allt að 80% þeirra sem þjást af þessum verkjum.
– Ef vatnið í líkamanum minnkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu skammtímaminni, erfiðleikum með einfalda stærðfræði og skorti á einbeitingu við lestur á tölvuskjá eða! annað prentmál.
– Að drekka 5 glös af vatni á dag dregur um 45% úr áhættu á krabbameini í þörmum auk þess sem það getur dregið allt að 79% úr áhættu á brjóstkrabba og lækkar áhættu karlmanna á blöðruhálskrabbameini um 50%.
Drekkur þú jafn mikið vatn og þú ættir að gera á hverjum degi?
– Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með10 lítra af kóki íbílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
– Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
– Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bídduí eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
– Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.
– Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.
– Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.
– Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.
– Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.
– Virka efnið í kók er phosphoric acid.
– Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
– Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru notuð á bíla sem flytja MJÖG ÆTANDI EFNUM.
– Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.
Langar þig enn í hressandi dós af Coca-Cola?