þetta er nú búin að vera meiri lúxus helgin…
dýrka það að geta dundað mér með karlinum í dúllerí eins og að malla eitthvað voðagott handa okkur… *nammi*
Kíktum á “Meet the Fockers” á föstudaginn… það er reyndar svona ekta framhaldsmynd… bara fær sko eitt *blaH* í minni bók.. reyndar nóg af skemmtilegum mómentum sem fá mann til þess að skella uppúr… en já ekki nógu oft
vorum svo búin að ákveða að vera ofsalega góð við okkur og njóta þess að sulla einhverjum hráefnum saman og elda ofsalega góðan mat sem við auðvitað gerðum… vá þetta var svo velheppnaður kjúlli að ég hef takmarkaðan áhuga á þeim veisluföngum sem bíða mín á eftir (fermingaveisla), mæli sko með þessum! bjuggum svo til svona kókosbollusprengu í desert þar sem sumir voru ekki alveg að muna eftir því hvernig hún bragðaðist um síðustu helgi… aníhú… fengum góða gesti í desertinn þar sem JöklInga kíktu í heimsókn og voru hjá okkur í dágóðan tíma að spjalla.. voða næs
Hlakka til að komast í eigið húsnæði og leika smá Monicu “I am the hostess” (sería 4 eftir að þær Rachel missa flottu íbúðina yfir til stákanna) *heh*
jæja best að drífa sig af stað í veisluna til hennar Helgu Hrundar
Til hamingju með daginn skvísa