Ég var að fá sendar myndir frá LS.
ekkert rosalega margar en myndir fyrir því 😉
þær verða bara fleiri sem fá að sýna sig á netinu eftir helgi 🙂
Þetta er sumsé herbergið sem LS hefur yfirráð yfir á meðan hann er á Kárahnj. ekki ýkja stórt en virkar ágætis herbergi fyrir því 🙂 hmm sumir hefðu kannski átt að búa um áður en þeir tóku mynd *hahaha* baaaaaaaaara stríða þér ástin mín 😉
Þessi er tekin þann 24. maí… dáldið spes að sjá hann þennan snjó svona í byrjun “sumars”, en gaman engu að síður að sjá þetta fallega landslag sem þarna er.
Allavegana þær myndir sem LS hefur sent mér má finna hérna