hvað maður þekkir sjálfan sig alltof vel stundum *urg*
Þannig er að ég sendi tölvupóst áðan til einstaklings varðandi málefni sem er mér ofarlega í huga og ég er MJÖG áhugasöm um hvaða svör ég fæ… ég hefði betur geymt það að senda þetta þar til núna rétt fyrir 4 því að þá hefði ég væntanlega ekki legið á heimasíðu Fjöltengis og endalaust verið að gera “refresh” haldandi það að ég fengi svar 1 2 og 3! Ef ég hefði sent þetta seinna þá hefði ég ekkert verið að gera refresh þarna enda færi ég að öllum líkindum ekkert í tölvuna fyrr en í kvöld eða í fyrramálið og þar sem ég veit að ég var að senda þetta í vinnumeil viðkomandi einstaklings þá er hann ekkert á leiðinni að fara að svara mér í kvöld er það?
efast stórlega um það…