Þegar ég kom heim úr vinnunni áðan var mamma að dunda sér við að baka smákökur.. reyndar var þetta eiginlega meira svona eins og kex heldur en smákökur… allavegana þær eru sjúklega góðar… ég samt stóðst ekki mátið og kíkti inn á heilsubloggið hennar Óskar og fann þar uppskrift að rosalega hollum svona kökum/kexi og náði að plata múttu til þess að baka þær (eða sko ég sullaði öllu saman og mamma fylgdist með því ég fór í leikfimi *dulleh*)
hmm eftir að hafa smakkað voðagóðukökurnar hennar mömmu var eiginlega bara eitt efst í huganum þegar maður smakkaði svo fínu hollu kökunar hennar Óskar.. vonbrigði… ekki misskilja mig þær eru líka góðar.. en er það ekki eiginlega alltaf svo að óhollustan er mun betri en það sem er hollt