hausinn á mér er greinilega ekki á því að vakna.. neibb ég er í raun MIKLU þreyttari en ég var þegar ég fór að sofa.. hvernig er þetta hægt?
Ég man reyndar að það var hörku hasar í gangi í draumalandinu… ætti kannski að plata Urðina til þess að fá að senda henni meil með draumnum.. þetta var ekkert smá…
Hef aldrei lent í því að eitt nafn sé svona svakalega áberandi í draumi, reyndar er þetta nafn sem stendur mér dáldið nálægt því að þetta er nafnið hennar Ömmu minnar. Sakna hennar, það gæti verið málið er samt hún kom ekkert fram í draumnum.. bara nafnið hennar
jæja best að fara *geispandi* að vinna verkin sín…