ég lét loksins verða af þessu…
Er með nokkra fæðingarbletti svona hér og þar á líkamanum sem mér hefur verið sagt að ég eigi að láta fjarlægja.. ok ekkert mál… heimilislæknirinn vill ekki taka nokkra þeirra þar sem ég er nú kvk og þeir eru á þannig stöðum að hann vill frekar að ég fari til lýtalæknis…
jæja þið megið vera stolt af mér núna og klappa mér á bakið og svo framvegis… Dagný litla er búin að panta sér tíma hja einum slíkum og er ss að fara til hans núna 7 apríl… það er reyndar pottþétt eingöngu viðtal og þarf því eflaust að fara til hans aftur seinna.. *jeij* hvað ég verð nú sæt og fín einn daginn með slatta af svona hvítum límplástrum í framan *ewww* En er ekki betra að láta taka þetta núna en að láta eitthvað grassera í þessu dóti seinna meir ?