ó það er stundum svo gaman að stelast
Ég fór ss á Skrappnámskeiðið í gærkveldi, voða gaman.. vildi samt óska þess að ég væri stundum eilítið hugmyndaríkari.. aníhú!
Skemmti mér svo stórvel í gærkveldi að ég er núna að stelast til þess að prenta út myndir hérna í vinnunni á fína prentaranum *jeij* Tók fyrir nokkur þema eins og t.d. byggingagerðina í Álfheimum fyrir jólin.. og seríu sem Jökull tók af okkur skötuhjúnum um daginn
sé hvort ég nái að gera eitthvað skemmtilegt úr þessum myndum
Er búin að vera á kafi að skoða skrappsíður og spurla helling af þeim, bæði leita mér að dóti sem ég ætla að fá ma&pa til þess að kaupa í ameríkunni og síður með hugmyndum að skrappsíðum…
Þarf bara að fara niðrí föndru núna helst á eftir og kaupa mér pappír svo ég geti unnið eitthvað skemmtilegt úr þessu.
er að spá í að halda áfram að fara yfir myndirnar sem ég er með á netinu og prenta eitthvað út