Við kíktum í smá viðrun í dag upp á Vatnsendahæð, ekki frásögufærandi svosem en ég bara stóðst ekki að staldra við og dást að útsýninu bara steinsnar fyrir ofan húsið okkar.
Á góðum degi sjáum við vel yfir borgina, meiraðsegja í dag sést langleiðina til mömmu og pabba í hinum enda borgarinnar þrátt fyrir þennan gráma.
Verður áhugavert hvað verður um þennan stað þegar fram líður – virðast vera endalausar pælingar um þéttingu byggðar og frá því að við fluttum hafa nokkrar byggingar risið hérna Kópavogsmegin á hæðinni.