Litla frænka Have Kaldal var skírð í dag í fallegri athöfn í Dómkirkjunni. Ég fékk krúttlegt símtal í gær þar sem ég fékk beiðni um að vera skírnarvottur hjá litlu dásemdinni sem var auðvitað ekki spurning, að sjálfsögðu yrði ég skírnarvottur.
Grétu nafnið kemur frá föðurömmunni, Grete Have. Gréta litla var greinliega alveg fullkomnlega sátt við fallega nafnið sitt og var hin rólegasta yfir þessu öllu saman.
Skírnarveislan var svo haldin í safnaðarheimili Dómkirkjunar og röltu allir saman þangað yfir eftir myndatöku og hamingjuóskir til Have Kaldal fjölskyldunnar 😉
Jón stóri bróðir skírnarbarnsins og Oliver minn eru afskaplega góðir vinir og var Jón ekki lengi að eigna sér Olla sinn og sá Olli nær alveg um hann eftir skírnina og í veislunni. Þeir eru alveg dásamlegir saman.
þessar 4 eru klárlega uppáhalds stelpuskotturnar mínar, Ása Júlía, Ingibjörg, Sigurborg Ásta og Gréta.