Ég er búin að breyta aðeins útlitinu… meira bara grunninum og skipta út bannernum þarna uppi
svo fór ég á stúfana í dag og gróf upp gamalt random image script sem ég notaði e-n tíma þegar ég var með random bannera *híhí*
er með um 14 myndir í gangi núna… sjáum til hvort ég eigi eftir að setja fleiri… á samt pottþétt eftir að skipta þeim út einhverntíma.. þ.e. ef ég nenni að hafa þetta í gangi
Best að taka það fram til þess að það verði enginn misskilningur ef einhverjir kannast við einhverjar myndir, að þá tók ég allar þessar myndir eða þá að þetta eru myndir sem teknar hafa verið á myndavélar sem eru í eigu minnar, Magnúsar (pabba) eða Leifs. Ég hlýt að vera með fulla heimild til þess að nýta þær eftir mínu eigin höfði….
voðaleg þögn er þetta annars í kommentakerfinu mínu… hvað er að ske?