finnst mér netið vera tærasta snilld
Málið er að um daginn keypti ég mér myndavél, búin að vera að fikta í henni á ýmsavegu en fór svo inn á síðu þar sem ég get skoðað skoðanir annarra á þessari vél. Fann ég ekki link á nokkurnskonar leiðarvísi á ensku (sá sem fylgdi vélinni var á flestum öðrum tungumálum en ensku og ísl, eins og er svo alltof algengt). *jeij* ég er búin að vera að dunda mér við að fikta í vélinni og læra á hana upp á nýtt núna eftir hádegið… svona milli þess sem það er e-ð að gera hjá mér… finnst ég vera bara búin að fá nýtt leikfang alveg upp á nýtt… samt er bara mánuður síðan ég keypti hana *haha*