jæja þetta er alveg stórmerkilegt… já ég komst lífs af, og Leifur reyndar líka… *haha* já mér tókst að draga hann með
Allavegana þá mættu reyndar aðeins færri en ég bjóst við reyndar voru sumir með alveg 150% gildar ástæður fyrir því að vera ekki á staðnum þar sem þeir eru tja m.a. búsett erlendis eða úti á landi (þá á ég við USA, Akureyri, Neskaupstað & Vestmanneyjar). Reyndar ofsalega gaman að sjá Vestmanneyjingana átti svo innilega ekki von á því að þau myndu öll mæta.
Fékk loksins að sjá 3 nýja fjölskyldumeðlimi með eigin augum hef bara fylgst með þeim Írisi Evu & Rúnari Inga á heimasíðunum þeirra á Barnalandi og auðvitað Lenu í gegnum síðuna þeirra… sko langamma þeirra þriggja er sko systir hans pabba…
já ég veit ég hef margoft sagt að ég sé örverpi
Ég stóð mig reyndar alltof oft að því að pæla “hvaða krakki er þetta eiginlega“, málið er nefnilega að í vissum aldursflokki virðast krakkarnir allir líta eins út *haha* en það eru krakkarnir á aldrinum 7 til 14.
Sko 14 ára er maður búin að fá fermingarboðskort á flesta og kveikja þannig hver er hvað *haha* just kiddíng. Reyndar þá er ekki það auðveldasta að fylgjast með öllum í rúmlega 100 manna hópi… Segja má að þetta hafi bara verið upphitun fyrir fermingarveisluna sem verður þann 5.mars eða hvað kallar maður þessa athöfn hjá Veginum ? Blessun? blöh ég man það ekki… kommer bara i lys
Allavegna þá var þetta stórskemmtileg dagstund, tók reyndar ekki margar myndir en þær leynast hérna. Vona reyndar að ég geti nálgast eitthvað af myndunum sem voru notaðar í slidesmynda sýningunni sem var þarna í dag.. fullt af skemmtilegum myndum af fjölskyldunni smelli eflaust einhverjum af þeim þarna inn ef ég næ í afrit af þeim