Í þessu COVID rugli erum við búin að vera svolítið innilokuð. Ég hef lítið farið út nema bara rétt í vinnu eða mögulega örferð í verslun þar sem tja það er víst ekki æskilegt að heilbrigðisstarfsfólk sé á flandri skv yfirmönnum okkar 😛
Hvað um það við höfum nýtt þessa góðu vordaga í að skreppa út í göngutúra eins og sjá má á fyrri færslum. Í dag tókum við léttan göngutúr í Heiðmörkinni fallegu.
Ása Júlía var öll í því að knúsa tré! já knúsa tré, veit ekki alveg hvaðan það kom en þetta var aðal sport dagsins 😉