Ég er að spegúlera í svona upp á djókið að taka upp þemavikur eða daga…
Þar sem myndavélin mín er staðsett í töskunni minni alla daga þá er tilvalið að skapa svona tilefni til þess að brúka hana almennilega og taka myndir við hin ýmsu tækifæri… næsta skref er eiginlega bara að koma upp með þema og raða því svo niður..
hmm aldrei að vita nema að það komi einhverjar flottar myndir út úr þessu.. var einmitt að fikta með myndavélina mína í hádeginu, taka myndir í þokunni… geta komið annsi flottar myndir í þokumistrinu.
Endilega ef þið hafið einhverjar hugmyndir að þema þá er um að gera að skella því hérna í kommentakerfið og aldrei að vita nema ég nýti það einhvertíma… annars þá er ég að spá í hvað ég eigi að hafa núna ?
1) þoka (21.02.05)
2) listaverk í náttúrunni
3) fólk
4) bros
5) blóm
6) nýtt
7) hús
8) hamingja (IngaSpringa)
þeir sem eru hugmyndaríkir endilega smella hugmyndum í kerfið… og það er að sjálfsögðu hverjum sem er velkomið að nota þetta líka