Jæja, ég og Liljan skelltum okkur á þetta skrappnámskeið í gær…
Lúmst gaman og við erum allavegana búnar að ákveða að fara á framhaldsnámskeið sem verður í mars. Ég nýtti ss 3 myndir frá London og Lilja notaði 3 baðmyndir af stráknum, ekkert smá sætur
þetta er alveg eitthvað sem passar vel við mig.. enda er ég soddan dúttlari… Ég þarf bara að taka mig til og fara í gegnum það dótarí sem ég á. Á nefnlega helling af föndurdóti sem á vel við í þetta föndur, eins og t.d. pappírsskera, gatara með allskonar mynstri og límmýs.
Ég er búin að vera föst í hinum ýmsu síðum tengdar þessu til þess að sjá svona ca verð og dót… Alveg búin að komast að því að mig langar að eignast tæki sem var notað í gær… var reyndar búin að skoða það á netinu fyrir jól en ég fékk að prufa að nota það í gær… ekkert SMÁ sniðugt fyrirbæri pant eiga verst hvað tækið er dýrt og enn dýrara að kapa stenslana í það… oh well.. so be it
Aldrei að vita nema maður plati Ástu frænku til þess að fara í shoppingspreeeeeeee fyrir mig úti eða fæ að senda dót til hennar og plata hana til þess að senda mér… sjáum til…