Ég verð að viðurkenna að mér finnst það dáldið spes að grilla í febrúar með Kolagrilli… aníhú! það er svosem ágætt líka bara er þaggi ? Maturinn í gær heppnaðist allavegana alveg stórkostlega! Mér skilst að það hafi verið keypt rúm 5kg af kjöti og ég held að það hafi verið tæpt kg eftir!!! ok við vorum 9 um þetta allt saman en mér er sama mér þykja rúm 4kg mikið af kjöti ofaní hópinn… sérstaklega þar sem það var líka RISA skál af salati, þýskt kartöflusalat sem var NB algert sælgæti, hrásalat, grjón og eitthvað fleira.. það var EKKI mikið eftir… kanínufóðrið kláraðist líka sko!
Þetta var mjög þægilegt kvöld (fyrir utan þá staðreynd að sumir fengu sér eilítið of mikið rautt og blönduðu svo smá “appelsínusafa” með).
Kveikt var í grillinu um 8 leitið og við stóðum ekki upp frá matarborðinu fyrr en rétt fyrir kl 11 … og það var líka bara til þess að búa til pláss fyrir kalóríubombuna mína Jámm ég bjó til desert kvöldsins. Fullt af allskonar dóti blandað saman og skellt inn í ofninn í smá stund og ís borinn fram með. jájá þetta kláraðist líka.. ekki ein arða eftir af kalóríusprengjunni og einhverjir nokkrir dropar eftir af ísnum.
Ég tók örfáar myndir á myndavélina mína þar sem snillingurinn ég gleymdi að hlaða batteríið en ég stal reyndar myndavélinni hans Leifs eftir það… fæ þær myndir við tækifæri.
Búin að skella mínum inn í albúm þannig að ef einhver hefur áhuga þá má þær finna hérna.