Við skelltum okkur í göngutúr með smá hækkun í vorveðrinu í dag 😛
Mosfell varð fyrir valinu. Krakkarnir eiga ekki í neinum vandræðum með að rölta þangað upp <3 enda frekar létt ganga, dálítið brött í upphafi en svo bara ljúfmeti og útsýni. Við reyndar lentum í smá bleytu uppi á toppnum þar sem var bara hálfgert dý rétt fyrir utan stíginn (reyndar á stígnum líka sumstaðar) en ekkert sem stöðvaði för.