Það er víst sumardagurinn fyrsti í dag þó svo að veðrið sé ekki upp á marga fiska 😉
Við skelltum okkur í smá göngutúr í dag enda einn af síðustu dögunum fyrir varp til þess að komast í Gróttu til þess að skoða sig um þar og kíkja aðeins í fjöruna auðvitað 🙂
Krakkarnir skoðuðu sig vel og vandlega um í fjörunni og fundu margt sem kom huganum á yfirsnúning – bæði til þess að fá allskonar fróðleik upp úr foreldrunum og koma ímyndunaraflinu í gang (eins og þörf sé á að virkja það hjá Ásu *haha* alltaf í fullu fjöri þar!)