úff púff…
Eitt af því fáa sem mér finnst ÖMURLEGT við þetta starf mitt, fyrir utan það að kljást við frekt & tillitslaust fólk, er að hringja í hrúgu af fólki til þess að afboða tímann hjá þeim… finnst það alveg hörmulegaleiðinlegt…
Auðvitað er það í 95.9% tilfella eitthvað sem ég hef ekkert getað spornað við (þessi 4.1% flokkast undir að tvítékka ekki frítíma hjá Þjálfurunum). Sbr þá þurfti ég að eyða megninu af fimmtudeginum og föstudeginum í að afboða fólk hjá MI og í dag tekur GG við þessu öllu saman, *piff* ekkert gaman… ég sem ætlaði að vera að dunda mér við að skrifa svona smá leiðbeiningar fyrir kerluna sem á að vera að vinna fyrir mig á meðan ér út í London… *crap*