Við skötuhjúin erum búin að vera að dunda okkur við það í kvöld að skrifa niður það sem við höfum áhuga á að sjá og setja svona nokkurnvegin niður á blað hvað við getum gert hvern dag fyrir sig.
Erum t.d. búin að kaupa okkur miða á netinu inn á Vaxmyndasafnið á föstudaginn… var búin að fá svo margar sögur um langar biðraðir og fleira “spennandi” í sambandi við biðtíma til þess að komast inn á safnið… reyndar þá fengum við afslátt á að bóka á netinu líka *múhahah* gaman að þessu… allavegana stundum 😉 Semsagt við erum örugg inn á tja eina safnið sem ég VIRKILEGA vil fara inn í *hehe* auðvitað er gaman svona seinna að hafa farið inn í t.d. British Museum og svona eitthvað fleira 😉
jæja best að hætta þessu dótarí hérna í bili…