betra seint en aldrei… loksins byrjuð á þessum galla fyrir væntanlegan lítinn vin styttist hratt í komuna hjá.
Ákvað að prjóna stærð 1 árs og úr Klompelompe garninu frá Sandnes. Uppskriftin heitir London heilgalli og er frá Rökkurknit
Munstrið virkar flókið en er fáránlega einfalt og frekar fljótprjónað. Ég fitjaði t.d. upp á þessu fyrr í kvöld. Hlakka til að halda áfram 🙂