Við áttum afskaplega kósí jóladag í dag.
Náttföt/kósíföt, konfekt, spil, snarl var málið í dag.
Við prufuðum líka leikina sem krakkarnir fengu í jólagjöf í gær og án gríns þá er einfaldasti leikurinn sá sem er að slá í gegn hjá allri fjölskyldunni.
Chimparty sem Sigurborg Ásta fékk í jólagjöf. Við þurfum ekki að nota fjarstýringar heldur eru símar og spjaldtölvur málið til þess að stjórna sínum karakter. Þessi leikur er tær snilld.
Just Dance sló líka í gegn hjá krökkunum og óhætt að segja að þau hafi verið uppgefin eftir góða törn í þeim leik *haha*