Með smá sorg í hjarta keyrðum við þennan mola í förgun hjá Hringrás í dag.
Foreldrar Leifs keyptu hann rétt eftir aldamótin sem “krakkabíl” og hefur hann gengið á milli krakkanna nú í tæplega 20 ár.
Við tókum þá ákvörðun fyrr í haust að leggja ekki meiri pening í viðgerðir og komið að nokkrum núna. Gerðum smá tilraunir með að athuga með áhuga á að taka hann í parta en sáum svo að það hreinlega borgaði sig ekki þannig að síðasta spölinn keyrði Leifur hann í hádeginu í dag.