Það er hefð í vinnunni minni að síðasta fimmtudag fyrir jól sé jólahádegi þar sem allir koma með eitthvað smotterí á hlaðborð.
Ég ákvað að prufa að baka piparkökuköku sem ég sá á instagramsíðunni hjá Evu Laufeyju fyrr í mánuðinum.
Vissulega hafði ég ekki þolinmæði í að skreyta hana jafn listilega og hún en þetta jólalega kökuskraut skilaði sínu og gott betur!
Við Leifur þurfum greinilega að fara að gera okkur aftur ferð í kökubúðina í NY til þess að kaupa meira!