Í byrjun aðventunnar á hverju ári fer lionsklúbburinn hans pabba að Sólheimum í Grímsnesi og býður íbúum og gestum Lkl Ægis upp á hangikjötsveislu og smá jólaskemmtun í íþróttahúsinu.
Þetta eru sannkölluð “litlu jól” 🙂
Pabbi hefur boðið okkur með undanfarin ár og er þetta farið að vera stór partur í byrjun jólanna hjá krökkunum. Oliver sem dæmi kaus frekar að fara austur heldur en að taka þátt í fótboltaleik sem átti að vera í dag (var svo aflýst vegna klaka á velli mótherjanna).
Þetta er ósköp notaleg stund sem við eigum þarna og njótum þess að fara á hverju ári <3