Við skelltum okkur á Matthildi í dag. Stelpurnar eru miiikið búnar að tala um að langa á sýninguna þannig að það var upplagt að drífa sig áður en þær hætta í sýningu.
Við skemmtum okkur öll mjög vel og nutum þess að vera saman. Stelpurnar kunnu flest lögin og söngluðu með. Ása Júlía hafði orð á því að ef við myndum fara á næstu tvær sýningar þá myndum við ná að sjá ALLAR Matthildarnar *haha*