Það hafðist!
Þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar um að ég myndi líklegast ekki vefja krans í ár vegna anna í skólanum þá eiginlega gafst ég upp og hennti í einn slíkann í kvöld. Vissulega hefur hann oft verið fallegri en það hafðist engu að síður og ég er bara sátt.
Neitaði hinsvegar algjörlega að skreyta kransinn og var það því í höndum Leifs 🙂
Krakkarnir fengu svo að sjá um að kveikja á fyrsta kertinu.