Ég minnist þess ekki að hafa séð svona mikið af ísnálalistaverkum hér á landi. Man hvað mér þóttu þær svakalega fallegar þennan vetur sem við bjuggum í Danaveldi – ólýsanlega fallegar OG langar!
Snjókornið okkar skartaði svona fínum ísnálum í dag.
Inga tengdó vildi meina að þessi mynd væri táknrænnni en margar aðrar sem ég hef birt í þessari mynd á dag verkefni… Kannski var það afþví að ég skrifaði pistil gærdagsins mun síðar en planið var og sömuleiðis þennan!